Fara í efni

Skráning kílómetrastöðu

Í ársbyrjun 2024 var tekið upp kílómetragjald fyrir akstur rafmagns-, tengiltvinn- og vetnisbíla. Kílómetragjald er áætlað og greitt með svipuðum hætti og gjöld fyrir þjónustu veitu- og orkufyrirtækja vegna sölu á heitu vatni og rafmagni til heimila og fyrirtækja. Þannig er greitt mánaðarlega og byggt á fjölda ekinna kílómetra á tímabilinu. Gjaldtakan byggir á akstursáætlun á grundvelli upplýsinga sem umráðamenn bíla skrá inn. Gjaldið er 6 krónur fyrir hvern ekinn kílómeter á rafmagns- og vetnisbíla en fyrir tengiltvinnbíla er gjaldið lægra, eða 2 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.

Um mitt ár 2025 er síðan ráðgert að kílómetragjald á bensín og dísel bíla komi til framkvæmda. Gjaldið kemur í stað olíu- og bensíngjalda sem falla þá niður. Fólksbílar og bílar undir 3,5 tonn munu greiða 6,7 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra.

Hér geta leigutakar skráð aflestur kílómetrastöðu.

Aðeins er hægt að skrá ökutæki sem eru í langtímaleigu hjá okkur.
Skráð í kílómetrum. Dæmi: 24599